Pondus Ráðgjöf
← Til baka á forsíðu

Rekstrarráðgjöf og innleiðing umbóta

Pondus Ráðgjöf aðstoðar fyrirtæki við að bæta rekstur, auka skilvirkni og ná fram mælanlegum árangri. Áhersla er lögð á að greina tækifæri, móta raunhæfar lausnir og fylgja breytingum eftir í daglegri starfsemi.

Rekstrargreining

Greining á rekstri, kostnaðaruppbyggingu, nýtingu auðlinda og skilvirkni verkferla. Markmiðið er að finna tækifæri til að bæta rekstrarárangur.

Verkferlar og stöðugar umbætur

Endurskoðun vinnuferla með áherslu á einföldun, bætt flæði, minni sóun og aukna framleiðni. Unnið er með aðferðir Lean og Six Sigma.

Stjórnun og rekstrarþróun

Ráðgjöf um skipulag, ábyrgðarskiptingu, markmiðasetningu, mælikvarða og daglega stjórnun rekstrar.

Verkefnastjórnun og innleiðing

Skipulagning og stýring umbótaverkefna frá upphaflegri greiningu til innleiðingar og eftirfylgni.

Ræðum tækifærin í þínum rekstri

Hafðu samband og við ræðum hvernig Pondus getur aðstoðað þitt fyrirtæki.

Hafa samband