01
Upphafið árið 2018
Rekstrargreining og umbætur hjá íslenskum fyrirtækjum með aðferðum Lean og Six Sigma.
Frá árinu 2018
Frá rekstrargreiningu og umbótatillögum til virkrar þátttöku í þróun og stjórnun fyrirtækja.
Pondus Ráðgjöf var stofnað árið 2018 þegar Pétur Guðnason flutti ásamt fjölskyldu sinni til Póllands, þar sem eiginkona hans hóf nám í læknisfræði.
Þar sem erfitt reyndist að finna starf við hæfi á nýjum stað skapaðist tækifæri til að nýta þá þekkingu og reynslu sem hann hafði öðlast í alþjóðlegum bílaiðnaði í Svíþjóð með öðrum hætti.
Hugmyndin var að bjóða íslenskum fyrirtækjum aðgang að sérþekkingu á rekstrargreiningu, framleiðni, verkferlum og stöðugum umbótum með aðferðum Lean og Six Sigma.
Þannig varð Pondus Ráðgjöf til.
Starfsemin hefur þróast samhliða reynslu og þörfum viðskiptavina. Áherslan hefur færst frá hefðbundinni rekstrargreiningu yfir í víðtækari ráðgjöf og beina þátttöku í framkvæmd umbóta.
01
Rekstrargreining og umbætur hjá íslenskum fyrirtækjum með aðferðum Lean og Six Sigma.
02
Verkefni í fjölbreyttum atvinnugreinum, þar á meðal framleiðslu, smásölu, þjónustu og byggingariðnaði.
03
Aukin áhersla á verkefnastjórnun, daglega stjórnun, innleiðingu breytinga og eftirfylgni.
04
Þverfagleg rekstrarráðgjöf með áherslu á fjárhagslegan ávinning, skilvirkni og varanlegar umbætur.
Í gegnum árin hefur komið í ljós að ein stærsta áskorun fyrirtækja er ekki endilega að greina hvað betur má fara, heldur að koma breytingunum í framkvæmd.
Góðar hugmyndir og ítarlegar greiningar skapa takmarkað virði ef þeim er ekki fylgt eftir með skýrri ábyrgð, markmiðum og markvissri framkvæmd.
Þess vegna hefur Pondus lagt sífellt meiri áherslu á að vinna með stjórnendum og starfsfólki við innleiðingu breytinga og þróun daglegs rekstrar.
Markmiðið er að skilja eftir sterkari rekstur, betri verkferla og aukna getu fyrirtækja til að viðhalda og þróa umbætur til framtíðar.
Hugmyndafræði Pondus
Hann verður til með þekkingu, skýrri stefnu, ábyrgð, framkvæmd og stöðugri eftirfylgni.
Kynntu þér þjónustu Pondus eða hafðu samband til að ræða möguleg tækifæri í þínum rekstri.