Stjórnunarstarf felur í sér mun meira en að tryggja að dagleg verkefni séu leyst.
Að mínu mati hvílir ábyrgð stjórnenda á fjórum grunnstoðum:
- Fólk – stjórnun, starfsþróun, frammistaða og starfsumhverfi.
- Ferlar – skilvirkni, gæði, stöðlun og áreiðanleiki.
- Fjármál – kostnaðarstýring, framleiðni og fjárhagslegur árangur.
- Framþróun – stöðugar umbætur, nýsköpun og framtíðarsýn.
Það er ekki nóg að sinna einni þessara grunnstoða vel ef hinar þrjár sitja á hakanum.
Stjórnandi getur búið yfir mikilli fagþekkingu en skort getu til að þróa starfsfólk. Hann getur haldið daglegum rekstri gangandi án þess að bæta verkferla eða haft góða stjórn á kostnaði án þess að byggja upp getu fyrirtækisins til framtíðar.
Raunveruleg stjórnunarhæfni felst í því að ná jafnvægi milli þessara fjögurra þátta og bera ábyrgð á heildarárangri starfseminnar.
Eru fyrirtæki að meta frammistöðu stjórnenda út frá öllum fjórum grunnstoðunum eða eingöngu hluta þeirra?
